Þjóðlagasafn Bjarna Þorsteinssonar
Þjóðlagasafn Bjarna Þorsteinssonar
2010
Ýmsir vanir ein- og kórsöngvarar hafa heimsótt okkur að undanförnu til að taka þátt í því að syngja inn lög úr bókinni Íslensk þjóðlög sem séra Bjarni Þorsteinsson tók saman. Verða allar upptökurnar, ásamt nótum af lögunum, frummyndum úr handritum og uppskriftum séra Bjarna birtar með hverju lagi fyrir sig. Þessar upptökur munu birtast í Ísmús gagnagrunninum.
Hér má sjá dæmi um upptökurnar.
Íslensk þjóðlög
2.6.2010
Tónlistarsafn Íslands vinnur nú að því að hljóðrita öll lögin í hinum mikla riti séra Bjarna Þorsteinssonar frá árinu 1906, Íslensk þjóðlög.