Sveinbjörn Sveinbjörnsson
Sveinbjörn Sveinbjörnsson
Sunnudaginn 9. október 2011 hélt Karlakórinn Þrestir og einsöngvararnir Garðar Thór Cortes, Valgerður G. Guðnadóttir og Eiríkur Hreinn Helgason og Krystyna Cortes píanóleikari stórtónleika í Salnum í Kópavogi. Tónleikarnir voru haldnir í tengslum við sýningu Tónlistarsafns Íslands á verkum, munum, myndum og bréfum úr safni Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, höfundar þjóðsöngsins. Stjórnandi var Jón Kristinn Cortez.
Flutt voru þekkt og óþekkt lög höfundar fyrir karlakór og einsöngsraddir en Bjarki Sveinbjörnsson, forstöðumaður Tónlistarsafns Íslands leiddi tónleikagesti í gegnum helstu æviatriði tónskáldsins undir tónleikunum. Með góðfúslegu leyfi flytjenda fékk Tónlistarsafnið að taka þessa tónleika upp og birtum við þá hér sem lið í kynningu á tónlist tónskáldsins. Lögin og fyrirlestrarnir birtast hér í sömu röð og á tónleikunum.

9. október 2011
Tónlist Sveinbjörns Sveinbjörnssonar