Sveinbjörn Sveinbjörnsson
Sveinbjörn Sveinbjörnsson
2011
- fyrsta tónskáld Íslendinga (1847-1927)
Laugardaginn 12. mars 2011 kl. 13:00 var opnuð sýning í Tónlistarsafni Íslands, Hábraut 2 í Kópavogi um Sveinbjörn Sveinbjörnsson píanóleikara og tónskáld - höfund þjóðsöngsins. Á sýningunni má sjá ýmsa persónulega muni úr eigu Sveinbjörns og fjölskyldu hans, fjölda ljósmynda, skjala og bréfa sem varpa ljósi á líf hans, sem og veggspjöld þar sem fjallað er um einstök tímabil í lífi tónskáldsins. Þá verða ýmsir munir til sýnis sem fengnir hafa verið að láni frá Þjóðminjasafni og Landsbókasafni. Þá verður hægt að hlýða á nokkrar af elstu hljóðritunum sem gerðar voru með lögum Sveinbjörns og upptökur þar sem hann sjálfur leikur einleik á píanó. Einnig má sjá myndskreytta frásögn af lífi og starfi tónskáldsins sem unnin var í Tónlistarsafninu.
Meðal muna á sýningunni er handrit að verkinu Polonaise frá árinu 1926, fyrir hljómsveit, sem Sveinbjörn gerði sér vonir um að flutt yrði á Alþingishátíðinni 1930. Hanritið hefur verið týnt um árabil en kom í ljós fyrir skömmu. Er það í fyrsta sinn sem það kemur fyrir augu almennings.
Sveinbjörn flutti ungur að árum frá Íslandi og starfaði lengst af í Edinborg í Skotlandi við tónlistarkennslu og tónsmíðar. Ef frá er talinn þjóðsöngurinn eru aðeins fáein sönglaga hans kunn hér á landi.
Kveikjan að sýningunni er að Tónlistarsafni hafa borist fjöldi muna frá barnabarni Sveinbjörns í Kanada, Eleanor Oltean, sem aldrei fyrr hafa komið almenningi fyrir sjónir.
Sýningunni er ætlað að varpa ljósi á ævi og störf fyrsta tónskálds Íslendinga og hlut hans í íslenskri tónlistarsögu.
Sýningarstjóri og hönnuður er Guðrún Helga Stefánsdóttir meistaranemi í Menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst, og er sýningin hluti af lokaverkefni hennar við skólann. Fræðilegur ráðgjafi er Guðbrandur Benediktsson sagnfræðingur og listrænn ráðgjafi er Anna Þóra Karlsdóttir myndlistarkona.
Sveinbjörn Sveinbjörnsson
11. mars 2011
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, höfundur lagsins við íslenska þjóðsönginn var fæddu á Nesi á Seltjarnarnesi 1847. Hann lést í Kaupmannahöfn árið 1927. Hér fyrir neðan má sjá video og myndir frá sýningu um hann sem opnuð var í Tónlistarsafni Íslands 11. mars 2011.
Þessi mynskreytta frásögn er unnin í Tónlistarsafni Íslands. Henni er ætlað að gefa örlítið yfirlit yfir sögu Sveinbjörn Sveinbjörnssonar píanóleikara og tónskálds. Höfundur handrits og vinnslu myndarinnar gerði Bjarki Sveinbjörnsson og upptökur þar sem Nína Margrét Grímsdóttir leikur gerðu Bjarki og Jón Hrólfur Sigurjónsson. Lesarar eru Guðrún Helga Stefánsdóttir og Bjarki Sveinbjörnsson. Við viljum þakka öllum þeim listamönnum sem gáfu okkur leyfi til að nota upptökurnar með sér í þessari frásögn. Friðrik Grétarsson lagði lokahönd á klippingar. Myndin er rúmlega einn og hálfur klukkutími að lengd.
Guðrún Helga Stefánsdóttir og Friðrik Grétarsson heimsóttu Kringluna 10. mars 2011 og spurðu nokkra viðskiptavini hennar um álit þeirra á þjóðsöng Íslendinga, Ó, guð vors lands. Myndband þetta var unnið í Tónlistarsafni Íslands í tengslum við sýningu um Sveinbjörn Sveinbjörnsson tónskáld árið 2011. Myndvinnsla og klipping: Friðrik Grétarsson.
Guðrún Pálsdóttir bæjarstjóri Kópavogs flytur ávarp við opnun á sýningu um Sveinbjörn Sveinbjörnsson tónskáld 11. mars 2011.
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra flytur ávarp við opnun á sýningu um Sveinbjörn Sveinbjörnsson tónskáld 11. mars 2011.
Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari, Pálína Árnadóttir fiðluleikari, Þórunn Ósk Marinósdóttir víóluleikari, Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari og Sigurgeir Agnarsson sellóleikari fluttu verkið Polonaise sem Sveinbjörn Sveinbjörnsson samdi árið 1926 með það í huga að verkið yrði flutt á Alþingishátíðinni 1930, sem ekki varð.