Íslenskir jazz-, rokk- og blúsgítarar
Íslenskir jazz-, rokk- og blúsgítarar
2009
Tónlistarsafn Íslands setur nú upp sína þriðju sýningu á árinu 2009. Að þessu sinni verða sýndir nokkrir helstu Jazz-, rokk- og blúsgítarar landsins sem og helstu tegundir magnara sem bransinn notaði. Þá getur að sjá fjöldi videoviðtala sem tekin voru við nokkra gítarleikara, en þau munu ganga á meðan á sýningunni stendur.
Sýningin er sett upp í samvinnu við Molann, Jazz & blúsklúbb Kópavogs og Gunnar Örn gítarsmið.
Myndin er af Þórði Árnasyni
Sýningin opnar 3. nóvember kl. 16.00 og stendur í 14 daga. Hún verður opin alla dagana frá kl. 14.-22.00
Ómetanlegt sjálboðaliðastarf fór fram við uppsetningu þessarar sýningar, og má þer helsta nefna, fyrir utan Gunnar Örn gítarsmið og Björn Thoroddsen gítarleikara, þá Þórð Árnason, Óttar Felix Hauksson og Jóhann Ísberg.
Opnun sýningarinnar hófst á því að Bjarki Sveinbjörnsson, forstöðumaður Tónlistarsafns Íslands bauð gesti velkomna og í framhaldi af því ávarpaði Ármann Kr. Ólafsson forseti bæjarstjórnar Kópavogs gesti og opnaði sýninguna formlega.
Með hverjum mun sem á sýningunni stendur er upplýsingaspjald, en þau má sjá hér á síðunni. Við að tvísmella á myndirnar stækka þær svo hægt er að lesa textann.
Íslenskir jazz-, rokk- og blúsgítarar
3. nóvember 2009
Opnuð