Pönk á Íslandi

 

Útvarpsþættir Jóns Halls stefánssonar og Árna Daníels Júlíussonar

Í tilefni af sýningunni HEILBRIGÐ ÆSKA - Pönkið og Kópavogurinn 1978-1983 hefur Ríkisútvarpið, Rás 1 ákveðið að endurflytja 6 útvarpsþætti sem bera heitið Pönk á Íslandi. Þættirnir voru á dagskrá Rásar 1 árið 1997. Þeir eru 6 talsins og umsjónarmenn þeirra eru Jón Hallur Stefánsson og Árni Daníel Júlíusson.


Í þáttaröðinni er sagan rakin í tali og tónum fram til 1980 og rætt m.a. við Valgarð Guðjónsson, Arnór Snorrason, Gunnþór Sigurðsson, Michael Dean Pollock, Stein Skaftason, Gunnar Hjálmarsson, Ásgeir Tómasson, Guðna Rúnar Agnarsson, Magnús Guðmundsson, Einar Örn Benediktsson, Ásmund Jónsson og Diddu.


Þættirnir verða á dagskrá á föstudagskvöldum sem hér segir:


25. september 2009 kl. 19.00

Pönk á Íslandi: 1. þáttur - nælur og hundahálsbönd.

Rætt við Valgarð Guðjónsson, Arnór Snorrason, Gunnþór Sigurðsson, Michael Dean Pollock, Stein Skaftason, Gunnar Hjálmarsson og Ásgeir Tómasson.


2. október 2009 kl. 19.00

Pönk á Íslandi: 2. þáttur - Kópavogsbíó  

Þessi þáttur fjallar aðallega um hljómsveitirnar "Utangarðsmenn" og "Fræbbblana". Rætt við Bubba Morthens, Mike Pollock, Stein Skaftason,  Gunnar Hjálmarsson,  Arnór Snorrason,  Andreu Jónsdóttur, Gunnþór Sigurðsson, Guðna Rúnar Agnarsson og Valgarð Guðjónsson.


9. október 2009 kl. 19.00

Pönk á Íslandi: 3. þáttur - annað hljóð í strokkinn   

Rætt við: Guðna Rúnar Agnarsson, Magnús Guðmundsson, Einar Örn Benediktsson, Ásmund Jónsson, Tryggva Herbertsson,  Stein Skaftason, Arnór Snorrason, Valgarður Guðjónsson, Ellý í Q4U, Gunnþór Sigurðsson, Bubba Morthens og Mike Pollock.


16. október 2009 kl. 19.00

Pönk á Íslandi: 4. þáttur - NEFS  

Rætt við Þórólf Eiríksson, Ásmund Jónsson, Valgarð Guðjónsson, Eyjólf Jóhannsson, Þór Freysson, Þorvar, Diddu, Gunnar Hjálmarsson,  Þór Eldon og Einar Örn Benediktsson.


23. október 2009 kl. 19.00

Pönk á Íslandi: 5. þáttur  - Melarokk  

Viðmælendur eru Steinn Skaftason, Bubbi Morthens, Mike Pollock, Jónatan Garðarsson, Friðrik Þór Friðriksson, Einar Örn Benediktsson, Gunnþór Sigurðsson, Ellý í Q4U, Ómar Stefánsson, Magnús Guðmundsson,  Gunnar Hjálmarsson,  Ásmundur Jónsson,  Didda,  Þorvar,  Guðni Rúnar Agnarsson og Hallvarður Þórsson.


30. október 2009 kl. 19.00

Pönk á Íslandi: 6. þáttur - Klofningur og hrun

Viðmælendur eru Þorlákur Kristinsson, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Óskar Jónasson, Þórólfur Eiríksson, Einar Pálsson, Magnús Guðmundsson, Einar Örn Benediktsson, Eyjólfur Jóhannsson, Ellý í Q4U, Ásmundur Jónsson, Gunnþór Sigurðsson, Gunnar Hjálmarsson, Didda, Mike Pollock, Guðni Rúnar Agnarsson, Steinn Skaftason og Bubbi Morthens


Að útsendingu þáttanna lokinn verða þeir settir á Hlaðvarp (Podcast) RÚV