Markmið safnsins eru eftirfarandi:

 

Að skrá og miðla hvers kyns upplýsingum og munum sem tengjast tónlist á Íslandi frá upphafi s.s. hljóðfærum, hljómtækjum, hljóðupptökum, nótum, bókum, myndum og munum.


• Að safna heimildum og gögnum um íslenska tónmenningu í formi frásagna, bréfa, viðtala, blaða- og tímaritsgreina, ævisagna og kvikmynda sem endurspegla íslenskan tónlistarheim.


• Að hafa frumkvæði að og stunda rannsóknir á sögu íslenskrar tónlistar/tónminja í samstarfi við fræðimenn á þessu sviði og skapa þeim jafnframt aðstöðu til vinnu sinnar eftir því sem kostur er. Safnið skal hafa frumkvæði að umsóknum um rannsóknarstyrki á sviði íslenskrar tónlistar.


• Að stuðla að miðlun sögu íslenskrar tónlistar, m.a. í formi fyrirlestra, námskeiðshalds og skólakynninga. Lögð skal sérstök áhersla á að nýta nýjustu aðferðir hverju sinni við miðlun efnisins.


• Að vera ráðgefandi á sviði tónlistar fyrir nemendur, skóla, einstaklinga og stofnanir sem til hennar kunna að leita á því sviði.


• Að leitast við að vera leiðandi og ráðgefandi í vörslu hljóðritana með íslensku efni, bæði útgefnu sem og hljóðritana í eigu stofnana og einstaklinga.


• Að tryggja almennt aðgang að og upplifun með nýjustu tækni.