Safnið er opið alla virka daga kl. 10:00-16.00

28.5.2010

 

Sagan - handrit að útvarpsþáttum um íslenska tónlist


Hér verða sett inn stutt æviágrip um íslensk tónskáld og flytjendur, sem og einstaka þætti íslenskrar tónlistarsögu.

Sýningunni

Íslenskir jazz-, rokk- og blúsgítarar

er lokið. Hún mun þó lifa áfram á heimasíðunni.

Hér má lesa upplýsingaspjöldin um munina á sýningunni


Heyrið gítarsóló frá: Tryggva Hübner, Þórði Árnasyni, Steina í Eik, Sigurgeir Sigmundssyni, Óla Gauk og Bjössa Thor - farið inn á Videoviðtöl

Videoviðtöl

Í samvinnu við Björn Thoroddsen gítarleikara vinnur Tónlistarsafn að því að skrásetja sögu helstu gítarleikara landsins. Þegar hafa verið tekið videoviðtöl við nokkra gítarleikara og eru þau aðgengileg hér.

Sjá staðsetningu Tónlistarsafns á kortihttp://ja.is/kort/#q=index_id%3A1433801&x=358238&y=404335&z=9http://ja.is/kort/#q=index_id:1433801&x=358238&y=404335&z=9shapeimage_3_link_0
Myndband í minningu Krýsuvíkurkirkjuhttp://www.avis.dk/Biler-Varevogne-Lastvogne/Varebil-og-lastbilVerkefni/Entries/2010/1/13_Krisuvikurkirkja.htmlshapeimage_4_link_0

Diskur með tónleikunum sem haldnir voru á sama tíma og gítarsýningin er kominn út. Til hamingju tónlistarmenn!

Verkefni/Entries/2010/1/13_Krisuvikurkirkja.html

Ný gögn afhent Tónlistarsafni: Jón Þórarinsson tónskáld hefur afhent Tónlistarsafni persónulegt safn sitt, þar undir bækur, handrit bréf og annað er verður til á einni æfi. Við erum stolt yfir þessu trausti!

Handrit að verki eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson komið í leitirnar.


Nýlega fannst handrit að verkinu Hátíðar-Polonaise eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Verkið er samið fyrir stóra hljómsveit, en einnig er það útsett fyrir kvintett og fjórhent fyrir píanó. Sveinbjörn (d. 1927) hafði óskað þess að verkið yrði flutt á Alþingishátíðinni 1930. Nánar verður gert grein fyrir verkinu síðar.

Handritið að Hátíðarpolonaise er nú til sýnis í Tónlistarsafni Íslands

Tónlistarsafni Íslands hefur borist glæsileg gjöf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík, en það eru ljósmyndir af erlendum tónlistarmönnum sem komu til Íslands á vegum Tónlistarfélagsins á áratuga starfi þess. Margar þeirra eru áritaðar af listamönnunum. Myndin hér til vinstri er af Elsu Mühl frá árinu 1959 en hún söng m.a. á svið Þjóðleikhússins í Rigoletto árið 1951 og nokkrum sinnum eftir það. Stefnt er að því að skanna inn allar þessar myndir og birta á heimasíðu safnsins ásamt upplýsingum um listamennina.

Tónlistarsagan á Tónlistarsafnið


Menntamálaráðuneytið hefur óskað þess að Tónlistarsafn Íslands varðveiti til frambúðar öll gögn og heimildir sem notuð voru við ritun Tónlistarsögu Íslands af Jóni Þórarinssyni. Tónlistarsafn býður öllum áhugasömum að nýta þessi gögn í safninu.

Íslensk þjóðlög


Tónlistarsafn Íslands vinnur að því að því að hljóðrita öll lögin í Þjóðlagasafni Bjarna Þorsteinssonar til birtingar á vefnum. Allir sem áhuga hafa á að taka þátt í verkefninu mega hafa samband við okkur með tölvupósti á: ts@tonlistarsafn.is



Við munum síðar birta öll lögin, ásamt myndum úr Þjóðlagasafninu svo og myndir úr handritum þar sem það á við. Öll lögin verða sett fram í leitarbærum gagnagrunni.

Myndir Sigfúsar Halldórssonar

Á Kópavogsdögum 2010 verður listamaðurinn, tónskáldið, píanóleikarinn og söngvarinn Sigfús Halldórsson í forgrunni. Í því tilefni verður sett upp sýning um listamanninn í safninu, sem opnar laugardaginn 8. maí. Engin heildarskráning er til um myndir Sigfúsar og hefur Tónlistarsafn Íslands hug á að bæta þar úr.


Allir þeir, sem eiga mynd eftir Sigfús eru beðnir að senda okkur tölvupóst, og gjarnan mynd af listaverkinu þar sem fram koma upplýsingar um myndina, þ.e. fyrirmyndina og hvernig hún komst í eigu þess er varðveitir hana. Ef fólk hefur ekki aðstæður til að taka stafrænar myndir sem senda má sem viðhengi í tölvupósti, mun safnið sjá til þess að senda ljósmyndara á staðinn.


Vinsamlegast sendið upplýsingarnar á.: ts@tonlistarsafn.is

Þá getum við í gleði okkar gengið suður Laufásveginn“. Vatnslitir. 1985. Eigendur: Hrefna Sigfúsdóttir og Ágúst E. Ágústsson

Fúsi á ýmsa vegu

Kópavogsdagar voru settir laugardaginn 8. maí 2010. Kl.14.00 með opnun sýningar í Tónlistarsafni Íslands um heiðursborgarann, listmálarann og tónskáldið Sigfús Halldórsson en 90 ár eru liðin frá fæðingu hans. Sýndir eru munir úr eigu Sigfúsar, listaverk, ljósmyndir og nótnahandrit ásamt ýmsu fleiru.


Þá má sjá og heyra nokkur lög úr gömlum sjónvarpsþáttum sem Sigfús flytur ásamt Guðmundi Guðjónssyni, Ingu Maríu Eyjólfsdóttur og Sigurveigu Hjaltested. Þá hefur Jónas Jónasson útvarpsmaður lesið inn bókina Kveðja til Reykjavíkur og verður hægt að hlusta á brot af þeim lestri á sýningunni.


Sýningarstjórar eru Anna Þóra Karlsdóttir og Guðrún Helga Stefánsdóttir.


Sýningin mun standa út árið.

Kópavogsdagar settir í Tónlistarsafni Íslands

Sigurrós Þorgrímsdóttir formaður Lista- og menningarráðs Kópavogs setur dagana:

Gunnsteinn Sigurðsson bæjarstjóri opnar sýninguna

Fúsi á ýmsa vegu:

Nokkrir krakkar á leikskólanum Kópasteinn komu í heimsókn og sungu m.a. lagið um Litlu fluguna. Hér má sjá hin lögin sem þau sungu.